- LÁTUM HLJÓMINN ÓMA -
Myndir
11.08.2011 11:26:40 / hikor

Stjórnar breytingar

Eins og þið vitið þá tók við ný stjórn í vor, Bryndís Erlings tók við af Höllu Einars sem formaður, Kolbrún Þóra tók við af Elínu Magg sem ritari og nú hefur Kristín Þóra tekið við af Hlíf Böðvars sem gjaldkeri, klöppum fyrir því.
Ég segji mig hér með frá gjaldkerastörfum, og einnig kveð ég ykkur stelpur því ég verð ekki með í vetur sökum þess að ég er að flytja á Selfoss.

Takk kærlega fyrir samveruna síðustu árin og gangi ykkur vel, ég lofa að koma á tónleika í haust.

Kær kveðja
Hlíf Böðvarsdóttir


» 0 hafa sagt sína skoðun

24.04.2011 21:10:02 / hikor

Framundan hjá Kórnum! :-)

Hæ allar!

Hérna kemur dagskráin eins og hún verður fram að tónleikum 8. maí:

- Næsta æfing þriðjudaginn 26. apríl byrjar klukkan 17:30 eins og seinasta. Við ætlum að renna yfir allt prógrammið á þeirri æfingu.
- Sunnudaginn 1. maí verður aukaæfing kl. 20-21:30.
- Þriðjudaginn 3. maí er kóræfing kl 18:30, svo syngjum við á setningu prestastefnunnar kl. 20:30.
- Laugardaginn 7. maí verður generalprufa á elliheimili, um eftirmiðdaginn þegar flestir komast. Á næstu æfingu ákveðum við tímasetninguna.
- Sunnudaginn 8. maí eru vortónleikarnir! Mæting er í hátíðarsalinn kl. 14:00 og tónleikarnir byrja kl. 16:00.
Rafræn auglýsing verður tilbúin á næstu dögum. Verum duglegar að auglýsa tónleikana!

Gleðilegt sumar og gleðilega páska!

Stjórnin

» 1 hafa sagt sína skoðun

23.02.2011 22:43:19 / hikor

Æfingabúðir

Æfingbúðirnar eru ekki á morgun heldur hinn.  Við leggjum af stað úr Reykjavík kl 16:00 og leiðin liggur upp á Hellisheiði  en síðan er beygt til hægri inn þrengslin.  Þegar þið komið niður síðustu brekkuna þá er fljótlega beygja til hægri og á skiltinu stendur Krísuvíkurleið.  Þá er ekið nokkra metra enn er beygt til hægri upp að Hlíðardalsskóla.
Það sem þið þurfið að taka með ykkur er:
Svefnpoki/Sæng + lak
Morgunmatur
Partýlögg ef vill
Gistingin kostar 2500kr
Matur                  700kr
                      = 3200kr
Þið megið leggja inn á reikninginn okkar um mánaðarmótin en ef þið getið þá er best að ljúka því af sem fyrst.

Við sjáum um kvöldmat á föstudaginn, það verður líklegast Lasagna og hádegismat á laugardaginn sem verður líklega súpa og brauð.  Við sköffum líka Te og Kaffi og það verður eitthað kruðerí með til að dífa ofaní kaffið. 
Halla og Bryndís ætla að mæta með gítarinn þannig að edilega komið með söngbækur ef þið eigið.

Hlökkum til að sjá ykkur um helgina
Kveðja Stjórnin

P.s. Endilega takið myndavélina með og svo má kanski setja nokkrar myndir hérna inn á síðuna





» 1 hafa sagt sína skoðun

20.02.2011 19:55:26 / hikor

Takk fyrir

Sælar stúlkur mig langaði bara að þakka fyrir samsönginn um helgina.  Ótrúlega gaman hvað allt gekk vel þrátt fyrir lélegan hljómburð á Háskólatorgi, sem kapellan bætti svo alveg upp.  Messan gekk líka nánast slysalaust fyrir sig.  Hlakka til næstu æfingar og vil kvetja ykkur stelpur að mæta á allar æfingar ef þið mögulega getið, því hver æfing skiptir mjög mikklu máli, því við gætum lært nýtt lag á æfingu og sungið það svo á tónleikum daginn eftir:)  En svo vil ég bara minna ykkur á að æfingabúðirnar eru næstu helgi.  Við munum segja ykkur frá öllu sem þið þurfið að vita á næstu æfingu.  Hlakka til að sjá ykkur.
Kveðja Hlíf BÖ

P.S. Endilega borgið kórgjaldið sem fyrst. 

» 1 hafa sagt sína skoðun

26.01.2011 19:30:26 / hikor

Æfingabúðir

fyrsta mál á dagskrá eru æfingabúðirnar okkar.  Við förum einu sinni á önn í æfingabúðir frá föstudegi til laugardags. 
Ákveðið hefur verið að hafa æfingabúðir 25.26. febrúar í Hlíðardalskóla í Ölfussi.  Gistingin kostar 2500 kr. á mann og eitthvað pínulítið í matarkostnað.  Kórinn skaffar kvöldmat á föstudag og hádegismat á laugardag en þið þurfið að koma með morgunmatinn ykkar.  Kaffi og Te í boði.
Æft er kl 18 á fös og svo byrjum við kl 9 á laugardagsmorgun og æfum til ca. 15, með hléum, og þá er förum við heim.  Á föstudagskvöldið höldum við smá partý og allir mega koma með smá partylögg með sér.  

Þá að öðru, eins og við sögðum á síðustu æfingu þá þarf að borga kórgjöldin um mánaðarmótin.  Gjaldið er 5000 kr.
Bankaupplýsingar verða sendar í tölvupósti innan tíðar.

Sjáumst á næstu æfingu
Hlíf B 

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.01.2011 23:42:57 / hikor

Vorannarstarfið komið á fullt...

Heilar og sælar...

Nú eru æfingarnar byrjaðar á fullum krafti. Framundan eru spennandi verkefni og skemmtilegir tímar. Eins og gengur og gerist hafa orðið svolitlar mannabreytingar meðal kórfélaga. Nokkrir gátu ekki verið með þessa önnina en í staðinn höfum við fengið nýja og ferska meðlimi. Við bjóðum nýju kórfélagana sérstaklega velkomna!

Hér til hliðar er undirsíða með nöfnum, netföngum og símanúmerum kórfélaga.

Starf vorannarinnar er um það bil að skýrast. Listi yfir æfingar og helstu tónleikadagsetningar verður sendur til kórmeðlima von bráðar.

Bestu kveðjur

Stjórnin...


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2011 20:50:09 / hikor

1. æfingin

Fyrsta æfing ársins 2011 er þriðjudaginn 11. janúar. 

Við vorum beðnar að syngja í við upphaf afmælis árs Háskólans 7. jan í Hátíðarsal skólans.  Þetta er klukkutíma prógram frá 10:30-11:30.  Við ætlum að syngja Þjóðlífsmyndina og Þó þú Langförull legðir.
Við ætlum að hafa tvær æfingar, á miðvikudaginn 5. jan kl 18-19 og fimmtudaginn 6. frá 18-19.  Endilega látið vita ef getið verið með.

Kveðja
Hlíf B.

» 0 hafa sagt sína skoðun

03.01.2011 12:30:44 / hikor

Gleðilegt nýtt ár!!

Gleðilegt nýtt ár stúlkur mínar.  Hlakka til að hitta ykkur á næstu kóræfingu.

» 0 hafa sagt sína skoðun

05.10.2010 08:49:59 / hikor

Haust önn 2010

Þá er kórinn hafinn aftur og fullt af nýjum stúlkum gengnar í lið við okkur.  Eftir 2 æfinguna vorum við u.þ.b. 40 sem að telst bara nokkuð gott.  Mér langar bara að formlega að bjóða allar hjartanlega velkomnar í kórinn og vonandi munum við eiga margar góðar stundir saman.
Í kórnum er starfandi stjórn og kosið er í hana á hverri önn.  Í lok síðustu annar þá var kosið í nýja nefnd og við tóku:
Halla Einarsdóttir  (annar sópran) sem formaður
Elín Magnúsdóttir  (fyrsti alt)  sem ritari
Hlíf Böðvarsdóttir  (annar sópran) sem gjaldkeri
og Magrét Bóasdóttir er að sjálfsögðu stjórnandi.
Ef einhverjar spurningar eða athugasemdir koma upp hikið þá ekki við að tala við einhverja af okkur.  Við höfum líka verið með raddformenn fyrir hverja rödd en þeir verða kosnir í æfingarbúðunum.

Hlakka til samstarfsins í vetur stelpur, sjáumst í kvöld.

Kveðja Hlíf Böðvarsdóttir

» 0 hafa sagt sína skoðun

26.08.2008 18:40:46 / hikor

Veturinn nálgast!!

Sælar stúlkur!! Jæja nú er sumarið á enda og það eina góða við það er að þá byrjum við aftur að syngja!!! :)  Eins og þið vitið ætlum við að reyna að kynna kórinn okkar góða á Háskóladögunum.. Vonandi fáum við til liðs við okkur fullt af nýjum, klárum söngdúfum!!
Það væri gott að fá fleiri til að syngja með okkur 2. sept og þá æfum við mánudaginn 1. sept kl 18 í Eirbergi fyrir það.. ;) En svo byrjum við að æfa af krafti 9 september í Eirbergi að vanda, kl 18!! Hlakka til að sjá ykkur hressar og kátar eftir frábært sumar!!

Kveðja Halla Rúnars

» 1 hafa sagt sína skoðun

12.03.2008 09:00:46 / hikor

Næsta æfing 25. mars

Sælar stúlkukindur

Það verður engin æfing næsta þriðjudag, þ.e. 18.mars þar sem þá er komið páskafrí !!

Næsta æfing verður því 25. mars og er mikilvægt að mæta á þá æfingu til að undirbúa sig fyrir æfingabúðirnar sem verða 28.-29. mars í Hlíðardalsskóla.

Hafið það gott í páskafríinu og lærið textana (þeir eru nefnilega svo erfiðir la la la la la :lol: )

Kv, Kristrún formaður


» 2 hafa sagt sína skoðun

01.03.2008 17:23:38 / hikor

Páskaegg

Páskaegg til sölu!!!

Nú fer að líða að páskum og þess vegna mun ég vera að selja hin girnilegu páskaegg frá Kólus á næstu dögum. Eggin er um 900 gr og kosta 2200 kr og eru að sjálfsögðu mjög góð. :)

Þeim sem langar að nýta sér þetta glæsilega tilboð, endilega pantið hjá mér sem fyrst, því í fyrra voru ekki allir sem fengu egg.. Fyrstir kom fyrsti fá!! ;) Til að panta sendið mér e-mail á lld1@hi.is eða hringja í mig í númer 8660342. Svo getið þið að sjálfsögðu talað við mig á æfingu, ég mun líklega auglýsa þetta þá líka.

-Lilja Laufey


» 0 hafa sagt sína skoðun

22.02.2008 08:46:54 / hikor

Æfingabúðir

Sælar stúlkur

Þá er það komið á hreint.
Æfingabúðirnar verða í Hlíðardalsskóla helgina 28.-29. mars, sem er frá föstudegi til laugardags, frá 16.00 - 16.00.
Fyrir þá sem ekki vita þá er Hlíðardalsskóli í um 30 mín akstursfjarlægð frá Reykjavík, í átt til Þorlákshafnar.

Takið nú helgina frá dömur.

Kv, Kristrún Elsa formaður.

» 0 hafa sagt sína skoðun

31.01.2008 14:39:25 / hikor

Breyttur æfingatími 5. febrúar !!!

Sælar stúlkur

Æfingin næsta þriðjudag (þann 5. febrúar) mun hefjast kl. 16:50 í sal 1 í Háskólabíó. Þar förum við yfir programmið fyrir útskrift endurmenntunar og svo færum við okkur yfir í Eirberg og æfum til c.a. 19.00.

Þetta er eini tíminn sem við gátum fengið í háskólabíó þannig að ef þið komist ekki kl. 16.50 þá komið þið bara upp í Eirberg kl. 18.00.

Kv,

Kristrún Elsa Harðardóttir, formaður


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.01.2008 16:33:13 / hikor

Skrifum okkur á listann!!

Kæru kórstelpur!
Ég rakst á þessa síðu
   

         "Nú er okkur nóg boðið!"

   http://www.PetitionOnline.com/nogbodid/

Persónulega er ég sammála því sem þarna segir og tel að þið getið líka tekið undir það. Ef þið eigið lausan tíma hvet ég ykkur til að skrifa ykkar nafn á listann! Við látum ekki bjóða okkur þetta!
Elín


» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 6
Klukkan